Ég vil byrja á að benda á frábæra grein Davíðs Þórs Björgvinssonar á DV þar sem farið er í gegnum aðildaferlið. Reikna með að alþingismenn og ráðherrar ættu að vera meðvitaðir um þetta https://www.dv.is/eyjan/2025/7/30/david-thor-bjorgvinsson-skrifar-adild-ad-esb-bakdyramegin/
Það virðist hafa verið öllum ljóst (nema kannski Gunnari Braga og lögspekingum hans)að til að taka Ísland alveg úr aðildaferlinu hefði þurft umboð þings og þjóðar. Allt annað væri bara yfirlýsing um að þáverandi ríkisstjórn ætlaði sér ekki að halda áfram með aðildarviðræður (sem hún hafði umboð frá kjósendum til). Þar með var Ísland tekið af lista umsóknarríkja sem var orðrétt það sem beðið var um. Það þýddi þó ekki að aðildarumsóknin, með þeim köflum sem búið var að semja um, væri tekin tilbaka.
Það hefur þessi síðbúna þingsályktunartillaga síðari ríkisstjórnar líklega átt að gera en eðilegt ferli hefði verið að gera hana og samþykkja á Alþingi af fyrrverandi ríkisstjórn sem sendi þetta bréf út. Þá hefði þáverandi utanríkisráðherra haft fullt umboð að draga umsóknina formlega tilbaka. Afhverju það var ekki gert í þau rúm 11 ár sem meirihluti var á þinginu er furðulegt og líka að einn umdeildasti þátturinn í aðildarviðræðunum, þ.e. Orkupakkinn, var tekinn inn í EES samninginn.
Nú er komin ríkisstjórn sem vill halda viðræðunum áfram og þarf til þess eðilega umboð þings og hefur umboð þjóðar frá kjósendum með því skilyrði að samningurinn verði sendur í þjóðaratkvæði. Umboð þings liggur þegar fyrir frá eldra þingi en auðvitað er best að gera nýja þingsályktunartillögu til að skerpa á því, þ.e. að þingmeirihluti sé fyrir því að taka þráðinn upp aftur. Sú speki að ráðherra geti hafið eða hætt aðildarviðræðum einsamall er auðvitað ekki raunveruleiki. Það þarf alltaf umboð þings og þjóðar til þess.
![]() |
Tillaga um afturköllun dó í ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Gunnar Sigfússon
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.7.): 70
- Sl. sólarhring: 129
- Sl. viku: 130
- Frá upphafi: 2245
Annað
- Innlit í dag: 38
- Innlit sl. viku: 80
- Gestir í dag: 35
- IP-tölur í dag: 34
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Lykilatriði sem Davíð Þór bendir réttilega á í greinni er að stjórnarskráin leyfir ekki aðild Íslands að ESB. Ríkisstjórnin getur ekki haft neitt umboð til að fara gegn stjórnarskrá og engin ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla getur breytt neinu um það.
Kröftum þjóðarinnar væri betur varið í allt annað en að þræta um rugl og vitleysu sem getur aldrei orðið að neinu og er efnislega útrætt mál frá upphafi.
Guðmundur Ásgeirsson, 30.7.2025 kl. 19:34
Forsetisraðherra og utanríkisráðherra eru svo þunnar og illa upplýstar, að þær skilja ekki stjornaskranna
Haraldur G Borgfjörð, 30.7.2025 kl. 22:48
Það kemur þeim þá í koll þegar fram líða stundir.
Guðmundur Ásgeirsson, 30.7.2025 kl. 23:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning